Dry Skin húðvörn 75ml

Proderm er skráð læknavara, medical device, CE merkt.

Tugir klíniskra rannsókna hafa verið framkvæmdar á virkni Proderm.

Skjótvirk hjálp á mikið þurra húð, rauðar kinnar og þurrkabletti, húðsprungur og þurrk á höndum og líkama. Við fyrstu notkun hverfur káði, sviði og roðaflekkir. Húðin verður mjúk og fær jafnan litarhátt.

Í frosti og vindum heldur Proderm húðinni rakafylltri, mjúkri og heilbrigðri. Lagar varaþurrk fljótt, vörnin þolir munnvatn, því lagast þurrkur þrátt fyrir sömuskilyrði og vandanum olli. Notið sem fyrirbyggjandi, setja má farða og varalit yfir Proderm.


Rakstur
Lausn við vandamálum við háreyðingu og rakstur á bikinilínu og fótleggjum. Engar bólur, roði eða útbrot, húðin verður mjúk og slétt. Notið Proderm eftir rakstur eða vaxmeðferð.  Við rakstur í andliti kemur Proderm í veg fyrir þurrk og útbrot. Ef húðin er mjög viðkvæm notið Proderm þá bæði fyrir og eftir rakstur. Engin fituáferð.

Hlaupabóla
Reynist mjög vel á hlaupabólu, slær strax á kláða og pirring í húðinni. Róar og kælir húðina. Útbrotin þorna mun fyrr og verða minni. Auðvelt að bera á húðina og í hársvörð. Engin fituáferð og smitar ekki í fatnað.

Vörn gegn lífrænum efnum
Vörn gegn lífrænum niðurbrots ensímum af maðki, fiski og átu. Vörn gegn snertiofnæmi af mold, gróðri, heyi, fóðri, brenninetlum, matvælum. Húðin helst mjúk og heilbrigð, þar sem ertandi efnin ná ekki að skaða húðina.

Fæst i öllum apótekum.