|
Celsus ehf . Heilsu- og hjúkrunarvörur var stofnað í nóvember 1995. Celsus er heildverslun sem selur vörur í gegnum apótek um allt land og að hluta til í Fríhöfnini í Leifstöð. Meðal viðskipavina okkar er Landspítalinn, og heilbrigðisstofnanir víða um land, Össur h.f. Íslensk erfðagreining, rannsóknarstofur, Landhelgisgæslan o.fl.
Leitumst við að bjóða upp á hágæða vörur sem standa undir væntingum neytandans og reynum eftir bestu getu að setja okkur í spor þeirra sem eiga viðskipti við okkur. Ósk okkar er að hver sá sem velur vörur okkar finnist hann hafa valið vel og fengið gæði í samræmi við kostnað og fyrirhöfn. Gerum okkar besta í að svara spurningum og ef við á leiðbeinum áfram til annars fagfólks sem málið kann að varða. Okkar stefna er að geta verið stuðningur til að gera fólki kleift að taka ábyrgð á eigin heilsu og efla vitund um fyrirhyggju hvað varðar heilsuna. Við óskum öllum hreysti og vellíðunar.
Framkvæmdastjóri . Anna Björg Hjartardóttir. Netfang: anna@celsus.is
Pantanir og fyrirspurnir: skrifstofa@celsus.is
Opnunartími á skrifstofunni er virka daga 9-17.
Celsus ehf Ægisíða 121, Reykjavík. Frá 1.október Sími 551 5995 Fax 551 5996 Netfang celsus@celsus.is
|