Vottað lífrænt
Lifestream Spírulina inniheldur 13 vítamín, 16 steinefni, 18 aminósýrur, snefilefni, auðmeltanlegt járn og GLA fitusýrur. Chlorophyll sem eykur súrefnismettun í blóðinu, auk fjölda andoxunarefna. Að taka inn Lifestream Bioactive Spírulina er eins og að taka inn algjörlega, lífrænt súper "fjölvítamín" - allt í einni dós.

Hvað er Spírulina? Spírulina töflurnar eru örsmáir, blágrænir þörungar sem eru ræktaðir í ferskvatni. Fjöldi vísindamanna er á þeirri skoðun að þessi örsmáa Spírulinajurt sé nánast fullkomin fæða. Líkaminn nýtir sér næringu úr Spírulina betur en nokkru öðru fæði, að grænmeti meðtöldu. Framkvæmdar hafa verið 300-400 rannsóknir á Spirulina. WHO Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin telur Spirulina ákjósanlegan næringarauka fyrir fullorðna og börn.
Lífrænt "fjölvítamín" sem virkar Það er vissara að gæta að því hvaða vítamín þú ert að taka. Vissir þú t.d. að virkni lífrænna vítamína er margfalt meiri en verksmiðjuframleiddra? Verksmiðjuframleidd vitamin sem eru samsett í rannsóknar- eða efnaverksmiðjum, innihalda tilbúin næringarefni og skortir lífræna, samverkandi eiginleika. Það er einfaldlega ekki mögulegt að líkja eftir hinu fullkomna lífræna jafnvægi næringarinnar í Lifestream Spírulina töflunum.
Eflir ónæmiskerfið gegn kvefi og flensum Lifestream Spírulina styrkir mjög fljótt varnir líkamans gegn umgangspestum. Ríkt af SOD sem er öflugt varnarensím fyrir ónæmiskerfi líkamans. Inniheldur hátt hlutfall af GLA fitusýrum sem styrkir mjög ónæmis- og taugakerfið og dregur úr streitu.

Sérfræðingar í Lífrænni Næringu
 | |
Spirulina kemur jafnvægi á blóðsykurinn, við fáum betri einbeitingu, verðum hressari og síður ofvirk, pirruð eða ör, er því gott fyrir alla sem eru í námi og undir miklu álagi. Lifestream Spirulina inniheldur mikið af chlorophyll sem er blaðgræna og eykur súrefnismettun í blóðinu, við finnum fljótt að við verðum hressari og dregur úr sætindaþörf. Aukin súrefnismettun hjálpar líkamanum að hreinsa burt úrgangsefni og vinna að endurbótum.
Gott fyrir líkamsræktina Spírulina er eina plantan sem inniheldur Glycogen-efnið, svo vitað sé, en það er frumuppspretta líkamans á skammtíma- og langtímaorku. Því meira Glycogen sem er til staðar í líkamanum þegar við stundum líkamsrækt, þeim mun betri verður árangurinn. Ef Spírulina er tekið inn hálftíma fyrir æfingar gefur það aukið þrek, úthald og styrk.
Fyrir hverja er Spírulina? Fyrir fullorðna, íþróttafólk, unglinga, börn, barnshafandi konur, konur með barn á brjósti,- og alla sem eru undir miklu álagi. Lífræn uppbygging næringarefna er í fullkomnu jafnvægi og samræmi við starfsemi líkamans og því ákjósanlegt sem lífrænt og hreint "fjölvítamín" fyrir alla fjölskylduna. Spírulina byggir upp orku, þrek og vellíðan.
Er vottað 100% hreint Það sem er eintakt við Lifestream Spirulina er yfirburðahátt næringarhlutfall. Er vottað 100% lífrænt - algerlega laust við skordýraeitur, illgresiseyði, mengun og GE-frítt (ekki genabreytt). Engu er bætt í eða tekið burt, annað en vatnið. Loftrýmið í dósunum er fyllt með köfnunarefni til að næringarefnin varðveitis en rýrni ekki vegna súrefnis. Uppfyllir mjög strangan alþjóðlegan gæðastaðall IS09001 og IS014001. Spirulina gefur þér orkuna sem þú þarfnast!
Fæst í apótekum. Umboð: Celsus - S: 551 5995.
|
 |
Meðmæli "Ég hef notað Spírulina í nokkrar vikur og er strax farin að taka eftir frábærum mun á líkama mínum. Það er eins og ég sé að öðlast nýtt líf. Heilinn, sem hefur verið sljór, er miklu skarpari og skýrari. Ég er reglulega ánægð, ánægðari en með nokkuð annað næringarefni sem ég hef reynt." Elizabeth frá Dunedin, Nýja-Sjálandi.
"Það sem ég elska mest við Lifestream Bioactive Spírulina er að ég finn ekki fyrir þreytu eða geðvonsku og er hætt að nöldra, þrátt fyrir mikla vinnu og álag. Ég er 36 ára og ég naga mig oft í handabakið fyrir að hafa ekki byrjað fyrr að nota Lifestream Bioactive Spírulina." Joanne frá Queensland.
| | |